Valbergshestar

| Ræktun & reiðtúrar |

Erlend ganghestakyn

Það eru þónokkur hestakyn sem eru þekkt fyrir ganghæfileika sína sem líkja má við tölt, og sum hver tölta bara ansi vel líka. Ég læt mér duga að nefna þessi þekktustu eins og Tennessee Walking Horse, Saddlebred, Peruvian Paso, Paso Fino, Missouri Foxtrotter og mig langar einnig að nefna hinn lítt þekkta Aegidienberger frá Þýskalandi.

-
Tennessee Walking Horse er ræktaður frá Thoroughbred, Canadian Pacer, Saddlebred, Morgan, American Standardbred og Narranganett Pacer. Þeir eru með mjög ljúft skap og eru auðtamdir. Þeir eru um 145-172 cm og vega 400-540 kg. Þekktastir eru þeir fyrir gangtegundirnar sem þeir sýna á sýningum, running walk, flat walk (bæði tölt) og "rocking horse" stökk.

Eðlilegur TWH er mjúkur og töltið er eðlislægt. Þeir eru ekki hágengir og rölta áfram á tölti undir knapanum áreynslulaust. Hins vegar er myndin sem flestir hafa af þessum hestum ekki alveg svona. Það var í kringum 1950 að einhverjum imbaköttum datt í hug að þyngja hestana til að ýkja fótaburðinn. Þetta virkaði vel, enda laðaði þetta að sér fólk á sýningarnar og viti menn ... peningarnir réðu og í dag (já í dag) þá tíðkast allskonar vitleysa í kringum þessar sýningar. Knapar gerast sekir um að særa hestana með allskonar efnum og nota þungar keðjur (170gr) utan á fæturna, eins og armbönd. Auk þess eru hestarnir járnaðir á næstum því 1 kg þungar skeifur. Sumir gerast sekir um að nota allt uppí 2,3 kg. þungar skeifur. Útkoman er vægast sagt fáránleg þar sem öll mýkt er horfin og hesturinn rykkir sér á alla kanta til að halda jafnvægi og bara til að ná að lyfta fótunum. Til að auka á þetta sjónræna konfekt eru hestarnir síðan sýndir með stíf stangamél og keðjur.

Sem betur fer eru samtök í Ameríku sem eru að sporna gegn þessari vitleysu og leita uppi óprúttna aðila. Sýningar þar sem þyngingar eru bannaðar verða fleiri og fleiri og eftirlitið verður betra og betra. Í raunveruleikanum er TWH alls ekki eðslishágengur hestur heldur mjúkur og frábær fjölskylduhestur, hentugur fyrir bakveika þar sem óskemmdir hestar eru þýðir og mjúkir og geðgóðir.

 
Tveir mjúkir Tennessee Walking Hestar

Ýktur fótaburður, þungar skeifur og framlengingar á framfætur.

Sýning 2008.

-
Saddlebred er ræktaður út frá Thoroughbred, Narranganett Pacer, Morgan, Hackney og American Standardbred og er náskyldur Tennesee Walking Horse. Hann er um 152-162 cm á herðakamb en getur að vísu orðið allt niður í 147 cm og uppí 172 cm. Hann hefur alltaf verið vinsæll enda þekktur fyrir mikla fegurð, þrek, ljúft skap og vilja. Auk þess er hann ganghestur með tölti.

Í dag eru hestarnir mestmegnis notaðir sem sýningahestar enda með mikið fas og fegurð. Þeir sýna "slow gait" og "fast rack" sem eru bæði tölt. Einnig teljast sumir hverjir vera fimmgangs þ.e. sýna fet, brokk, stökk og slow gait+rack (hægt og hratt tölt). Þeir tölta ansi vel.

 
 
Flottir Saddlebred
  
Hér sitja knaparnir of aftarlega og taumhaldið er of hátt.
 
Á tölti ... eða hvað ... kannski er ekki öllum Saddlebred ætlað að tölta ?
 
Knaparnir sitja of aftarlega, en það virðist vera tískan þarna úti ... er það að smitast til Íslands ..?

-
Missouri Foxtrotter er ræktaður út frá Saddlebred, Standardbred, Tennessee Walking Horse, Morgan, Thoroughbred og Araba. Ræktunarmarkmið voru sett mjög snemma og voru aðeins notaðir hestar sem sýndu hratt brokktölt. Útkoman er að í dag eru þessir hestar mjög vinsælir meðal almennings, sem hindrunarstökkhestar, kerruhestar, smalahestar, frístundareiðhestar og sýningahestar. Þeir eru oft sýndir í western stíl eða í english pleasure stíl (sem er tvennskonar áseta í rauninni). Þeir eru einnig sýndir í hendi. Í sýningum er bannað að nota þyngingar eða annað sem ýkir hreyfingar þeirra og eru þeir dæmdir fyrir brokktölt (50%), tölt (25%) og valhopp (25%). Hestarnir eru um 142 - 162 cm á hæð


Foxtrotter, annar á brokki og hinn á brokktölti

Frístundareiðhestur og hindrunastökkhestur, báðir Foxtrotter

Sýningahestar sýndir í english pleasure stíl og í western stíl

-
Peruvian Paso er suður-Amerískur töltari. Hann er ræktaður út frá Barb, Andalucian og Jennet (sem var ekki sérstakt hestakyn heldur, að mér skilst, töltandi týpur af Barb eða Iberian hestakynum - t.d Lusitano, Sorraia og Garrano). Peruvian Paso er um 143 - 154 cm á hæð. Þeir brokka ekki en eru þjálfaðir upp í að sýna tvennskonar tölt, Paso Llano sem er fjórtakta hægt tölt og sobreandando sem er tvítakta tölt (skeiðtölt á íslensku) og er riðið mun hraðar en Paso Llano.

Peruvian Paso eiga að sýna nokkuð sem kallast termino og væri litið hornauga ef íslenskur hestur sýndi það í reið. En þá sletta þeir framfótunum út til hliðanna og þykir þetta voða flott, en ekki nauðsynlegt til að þeir tölti þó.


Peruvian Paso stóðhestur og töltandi folald

Hefðbundinn útbúnaður á sýningahesti og foli í þjálfun

Töltandi Peruvian Paso með hefðbundinn útbúnað og termino fótahreyfingin

-
Paso Fino er oft ruglað við Peruvian Paso en er þó allt önnur tegund, gangtegundirnar eru aðrar og æskileg frammistaða á sýningabraut er önnur. Hann er ræktaður út frá sömu tegundum og Peruvian Paso eða Barb, Andalucian og Spanish Jennet en ræktunarmarkmiðin voru önnur. Útkoman eru tvö ólík hestakyn með svipaða forfeður. Paso Fino getur verið allt frá 132 - 154 cm á hæð en algengast er að þeir séu um 135 - 144 cm. Þeir geta því verið ansi smávaxnir en bera oft stóra og þunga knapa enda sterklega byggðir.

Gangtegundir Paso Fino eru fleiri en hjá Peruvian Paso. Þær eru Classic Fino (mjög hægt og skrefstutt tölt þar sem hestinum er safnað saman), Paso Corto (milliferðatölt), Paso Largo (hratt tölt þar sem þess er krafist að hesturinn sé alltaf í jafnvægi og í einhverri söfnun). Að auki við töltið kann Paso Fino auðvitað fet, brokk (eða brokktölt), og stökk (eða valhopp). Ekki er ætlast til þess að Paso Fino sveifli fótunum til hliðanna eins og Peruvian Paso gerir, reyndar er það óæskilegt.


Paso Fino báðum riðið með méllaust beisli
 
Paso Fino er notaður til margra annara hluta en sýninga t.d. sem frístundahestur.
 
Sýningahestar

-
Aegidienberger frá Þýskalandi er ansi áhugverður hestur, ef ekki aðeins að því leitinu til að hann er blandaður úr Peruvian Paso og Íslenskum hesti. Töltið er honum eðlislægt og er ræktunarmarkmið að allir ræktunargripir tölti undir sjálfum sér. Hann er 132 - 142 cm á hæð. Það eru fáir einstaklingar til af þessu hestakyni í dag og er það mjög nýtt, eða ungt hestakyn. Markmið þess að blanda saman þessum tveimur ólíku hestakynum var til að fá harðgerari hest heldur en Peruvian Paso hestinn og nettari, stærri og glæsilegri hest heldur en þann íslenska. Það má síðan deila um hvort þetta hafi tekist.


Aegidienberger stóðhestar
 

Töltandi

Aegidienberger folald
Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 33
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 59649
Samtals gestir: 19712
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:03:03