Valbergshestar
Nafn:
Siggakr & Jói ValbergAfmælisdagur:
Mars og febrúarHeimilisfang:
MosfellsbærStaðsetning:
ÍslandÖnnur vefsíða:
www.flickr.com/photos/siggakrUm:
Við erum lítil fjölskylda, tvö í háskóla, eitt í grunnskóla og eitt í leikskóla og höfum áhuga á hestum. Nóg að gera ...Tenglar
- Áhugavert
- Bitless Bridle
- Custom Saddlery
- Hnakkafræðsla
- Kaplamjólk
- LG beisli (þýsk síða)
- Nurtural horse
- Prestige Italy (hnakkar og fylgihlutir)
- Annað
- 847
- Eiðfaxi
- Foli.is
- Helluskeifur
- hestafréttir
- Hestamannafélagið Sörli
- Saddle up tack vefverslun
- Blogg
- Linda Karen
- Hestar
- Galsi frá Sauðárkróki
- Hruni frá Breiðumörk2
- Mánasteinn frá Álfhólum
- Suðri frá Holtsmúla
- Tývar frá Kjartansstöðum
- Hrossabú
- Álfhólar
- Ásgarður
- Efra-Sel
- Fjall
- Hestvit
- Hólateigur
- Litfari
- Litla Brekka
- Úrvalshestar
- Þjálfun
- Beisli án méla
- Bent Branderup
- Hestamennt
- Katrin Wallberg
Litir í íslenskum hrossum
Myndir á þessari síðu er óheimilt að afrita ©






Rauðlitföróttur (vor) Brúnlitföróttur (sumar)

Blesóttur og tvístjörnóttur

Rauðskjóttur, blesóttur (og stjörnóttur ?)
Dökkbrúnn
Brúnn
Einkenni: Svartur líkami, svart tagl og fax, dökkir hófar. Tagl og fax getur verið ögn ljósara en búklitur þó er það yfirleitt lýsing vegna sólarljóss. Brún hross geta verið móbrún með dökkri rák eftir hryggnum (mön) og yfir í biksvört.
Litbrigði: Móbrúnn, brúnn, dökkbrúnn, svartur
Móálóttur, kolóttur
Móálóttur (mósótt)
Einkenni: Steingrár/öskugrár líkami, dökk mön liggur eftir baki sem gerir grátt fax og tagl dökkt, svartir sokkar. Stundum er andlit mun dekkra en búkurinn og kallast liturinn þá kolóttur. Stundum koma einnig fram sebrarendur á fótum.
Litbrigði: Ljósmóálóttur, móálóttur, dökkmóálóttur, kolóttur
Fagurrauður, glófextur rauður lifurrauður, glófextur
Rauður
Einkenni: Rauður líkami, rautt tagl og fax, dökkir hófar. Tagl og fax getur verið ljósara eða dekkra en búklitur. Mörg litbrigði fylgja rauðum lit allt frá ljósrauðum upp í sótrauðan eða lifurrauðan.
Litbrigði: Ljósrauður, fölrauður, rauður, dökk rauður, dreyrrauður, sótrauður, lifurrauður
Glófextur
Rauður glófextur
Einkenni: Rauður líkami, gult tag og fax, dökkir hófar. Fax getur verið ljósgult og dökkgult.
Litbrigði: allir rauðir litir geta verið glófextir, einnig leirljósir.
Bleikur
Bleikur
Einkenni: Bleikrauður líkami, bleikrautt tagl og fax, ljósari hófar en hjá rauðum hrossum. Dökkbleikrauð mön eftir baki. Stundum koma fram sebrarendur á fótum.
Litbrigði: ljósbleikur, fífilbleikur, bleikur, rauðbleikur, dökkbleikur, kolóttur
Bleikálóttur Korgbleikálóttur
Bleikálóttur
Einkenni: Dökkbleikur líkami, dökk mön liggur eftir baki sem gerir ljósbleikt fax og tagl dökkt, svartir sokkar. Stundum er andlit mun dekkra en búkurinn. Stundum koma fram sebrarendur á fótum. Fætur og hófar eru dökkir
Litbrigði: ljós bleikálóttur, bleikálóttur, dökkbleikálóttur, korgbleikálóttur, kolóttur
Rauðjarpur Ljósjarpur
Jarpur
Einkenni: Rauðbrúnn líkami, svart tagl og fax, oft svartir sokkar. Snoppa yfirleitt ljósari en líkaminn. Hófar dökkir og augu yfirleitt dökk.
Litbrigði: Ljósjarpur, jarpur, rauðjarpur, korgjarpur, dökkjarpur
Ljósglóbrúnn Glómoldóttur
Glóbrúnn
Einkenni: Fölbrúnn/gulbrúnn líkami, fax og tagl yfirleitt í sama lit eða svipuð, hófar oftast dökkir. Líkjast móbrúnum (ljósbrúnum) hrossum en hafa rauðleitan blæ á búknum. Augu eru oftast gul eða ljósbrún. Liturinn hefur einnig verið kallaður muskóttur.
Litbrigði: ljósglóbrúnn, glómoldóttur, glóleirljós, glóbrúnn, dökkglóbrúnn.
Ljós Leirljós Leirljós
Leirljós
Einkenni: ljósgulur/hvítur líkami, fax og tagl ljóst, hófar dökkir. Dökkleirljósir geta virst ljósrauðir oft á tíðum. Leirljós hross verða ljósari á veturna og dökkleirljós geta stundum virst litförótt. Leirljós hross geta verið glófext.
Litbrigði: ljós leirljós, leirljós, dökkleirljós, kolóttur, glófextur
Moldóttur Bleikálóttmoldóttur Draugmoldóttur
Moldóttur
Einkenni: Ljósgulur, jafnvel hvítur líkami, fax og tagl svart, hófar dökkir, yfirleitt svartir sokkar. Stundum eru augun ljósbrún. Snoppa oft svört. Til eru það dökkmoldótt hross að þau virðast ljósjörp.
Litbrigði: ljósmoldóttur, moldóttur, korgmoldóttur, draugmoldóttur, dökkmoldóttur
Litleysingi
Litleysingi (albínói)
Einkenni: Hvítur líkami, ljóst tagl og fax, hófar ljósir. Augu eru aldrei dökk heldur blá og kallast hrossin hringeygð.
Litbrigði: Litleysingjar geta verið misljósir og stundum sjást á þeim blesur eða sokkar.
Apalgrár Ljósapalgrár Hvítur
Grár
Einkenni: Folöld fæðast í hvaða lit sem er en hvítna með aldrinum. Misjafnt er hversu gömul þau eru þegar grái liturinn er orðinn ríkjandi. Misjafnt er því hvort hófar séu dökkir eða ljósir og hvort hross séu með dökk eða ljós augu. Annað foreldrið verður að vera grátt til að afkvæmið fái þennan lit.
Litbrigði: Fer eftir grunnlit, hross með blesu og þar af leiðandi bleika snoppu eru stundum kölluð hvít. Önnur nöfn á gráum lit er ljósgrár, yrjugrár, dökkgrár, apalgrár
Brúnskjóttur (vængskjóttur) Rauðskjóttur
Skjóttur (ríkjandi)
Einkenni: Vöntun á lit sumstaðar á líkamanum. Skjótt getur komið fram með öllum grunnlitum. Annað foreldrið verður að vera skjótt til að afkvæmið fái þennan lit, og ríkjandi skjóttur er aldrei dulinn í einlitum hrossum.
Fjölmörg nöfn eru á skjóttum lit. Vængskjóttur, höttóttur, Kinnskjóttur, hjálmóttur, síðuskjóttur, skottóttur o.fl.
Slettuskjóttur
Slettuskjóttur (víkjandi)
Einkenni: Vöntun á lit sumstaðar á líkamanum. Er ólíkur venjulegum skjóttum lit að erfðum þar sem slettuskjótt folöld þurfa erfðavísinn frá báðum foreldrum. Slettuskjótt getur legið dulið í hrossum en þau fá þá oftast breiðar blesur eða hvít andlit og jafnvel sokka. Slettuskjótt mynstur eru einnig ólík skjóttum en þeim fylgir ofast hvítt andlit, sokkar og hvítur magi en efri hluti líkamans er yfirleitt ekki hvítur.
Slettuskjótt er yfirleitt kallað því nafni.
Móvindóttur
Vindóttur
Einkenni: Dökkur (misjafnt eftir grunnlit), hvítt tagl og fax, dökkir hófar. Tagl og fax getur verið steingrátt yfir í hvítt. Búkur oft með apalgráum doppum. Vindótt hross eru yfirleitt dekkri á veturna en sumrin og stundum svo mikið að þau virðast litförótt. Rauð hross geta verið vindótt en yfirleitt sést það ekki á þeim þar sem vindótti erfðavísirinn aflitar aðeins brúnt fax og tagl. Oft eru þannig hross kölluð rauð vindhærð eða skolrauð en geta eignast vindótt afkvæmi.
Litbrigði: móvindóttur, dökk móvindóttur, jarpvindóttur, moldvindóttur, bleikvindóttur
Rauðlitföróttur (vor) Brúnlitföróttur (sumar)
Litföróttur
Einkenni: Tvennskonar hárlitur, getur komið fram með hvaða grunnlit sem er en sést ekki vel á ljósum hrossum. Vindhárin (þykku vetrarhárin) eru hvít en grunnhárin eru í grunnlitnum. Hrossin virðast því skipta um lit eftir árstíðum. Annað foreldrið verður að vera litförótt til að afkvæmið fái þennan lit.
Litbrigði: engin litbrigði önnur en mismunandi grunnlitir
Blesóttur og tvístjörnóttur
Blesur, stjörnur, sokkar
Einkenni: Vöntun á lit í andliti eða á fótum. Minnst annað foreldri hrossan þarf að vera með stjörnu, blesu eða sokka til að afkvæmin fái þennan lit. Stundum eignast skjótt hross afkvæmi með stjörnu, blesu eða sokka.
Litbrigði: smástjörnóttur, stjörnóttur, stórstjörnóttur, úðastjörnóttur, halastjörnóttur, tvístjörnóttur, þrístjörnóttur, nösóttur, stórnösóttur, smáblesóttur, blesóttur, úðablesóttur, skakkblesóttur, stórblesóttur, hvíthæfður, leistóttur, sokkóttur
Rauðskjóttur, blesóttur (og stjörnóttur ?)
Aðrir litir
Stundum koma fram litir hjá íslenskum hrossum sem ekki þykja algengir eða hefur ekki heyrst um áður. Til að mynda var til ræktunarhryssa sem var skjótt en vantaði þó engan lit. Hún var dökkrauðskjótt og þar sem hefði átt að vera hvítt var í staðin venjulegur rauður litur. Hún erfði þetta litbrigði ekki frá sér. Alloft koma fram grá hross með dökka blesu, jafnvel dökk hross með hvíta blesu og rauða, stundum eru skjótt hross með hvítt andlit og dökka stjörnu, og sum hross eru hvít með dökk eyru. Öll þessi litbrigði eru útskýranleg erfðafræðilega en sjaldgæf og skemmtileg viðbót í litaflóruna.
Eitt litarafbrigði vantar með öllu í íslenska hestinn en það er doppótti liturinn eins og prýðir knapstrup hestakynið og appaloosa hestakynið. Þetta litarafbrigði kallast hlébarðamynstur á íslensku og erfist svipað og skjóttur litur. En einhvernvegin varð þetta litarafbrigði til og því ekki ógerlegt að það komi fram hjá íslenska hestinum í framtíðinni.
Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 56
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 60096
Samtals gestir: 19886
Tölur uppfærðar: 24.5.2012 17:49:25
s
